28.10.07
Rafmagnsleysi nútímamannsins - DRAMA
Linnti nóaflóðinu undir kvöld og eftir það hefur bara verið blíða. Það sem komið hefur úr lofti er í fastara formi og er jörð fölhvít. Tré eru dúðuð hrími og frost í lofti – bara eins og jólin séu komin.
Ástæðan fyrir þessu bloggi er þó ekki veðurlýsing heldur gamalkunn upplifun sem fallin var í gleymsku hjá mér.
Hér fylltist hús af góðum gestum seinnipart laugardags og samfara pottferðum var hafinn undirbúningur að mikilli átveislu. Kjúklingar voru lagðir á grill og fleira mallað í ofni og á hellu. Kvöldfréttum lauk á rás 1 - fátt fréttnæmt.
Skyndilega blikkuðu ljósin og dofnuðu mjög. Gestir vöknuðu til lífsins og fannst þetta spennandi enda sínu myrkara en áður. Hávaði mikill heyrðist í ísskápnum og var gripið til þess ráðs að slá rafmagnið alveg út og inn aftur. Lætin þögnuðu en enn var lítil spenna á. Fólk gerði að gamni sínu og fannst þetta krydda tilveruna – svipað var ástatt í öðrum bústöðum. Ekki liðu margar mínútur þar til allt rafmagn fór af hverfinu. Nú var öllum kertum safnað saman og kveikt á þeim og dreift sem hægt var. Upp komu ýmsar pælingar hvernig maturinn skyldi eldaður. Því sem var í ofni var hent á grillið og ylnum haldið á því sem klárast hafði á eldavél. Annað skyldi eldað þegar rafmagnið kæmi - mjög fljótlega..... Rifjaðar voru upp sögur af rafmagnsleysi fyrri alda s.s. eins og af konunni sem ákvað bara að nýta tímann til að strauja þegar rafmagnið fór!
Eftir kortersgleði án ljóss og „lífs“ fór aðeins að þyngja tóninn. Ætlar þetta nú ekki að fara að koma aftur? Hvernig eigum við að elda þetta og hitt og ekkert el á eldavélinni? Nýr matseðill var útbúinn í snarhasti og næsta hálftímann var tínt á borð það sem fólk taldi ætt og eldað. Birta var mjög takmörkuð og komust matargestir að því að matur án sjónskynjunar bragðaðist mun betur. Þegar eitt skynfærið nýttist ekki mögnuðust önnur upp. Tónninn var þó orðinn mjög þungur og vildu krakkarnir að þessu linnti og ekki seinna en strax. Byrjað var að segja draugasögur til að hafa ofan af fyrir þeim – sem að sjálfsögðu endaði með heiftarlegri myrkfælni! Varúlfarnir voru taldir sérstaklega hættulegir enda fullt tungl.....
Minna var talað og rifjuð upp sjónvarpsdagskráin sem restin af þjóðinni naut. Reynt að þvo upp í myrkrinu. Litið út um glugga og mældar mínútur sem gróðurhús Suðurlands voru án rafmagns. Rætt hvort hiti héldist þar og hve langur tími mætti líða án þess að skemmdir kæmu fram. Hér innandyra féll hitastigið nokkuð hratt samfara rýrari samræðum. Tveir tímar liðnir og myrkrið aldrei svartara. Sprittkertin að brenna út og skriðið undir sæng til að halda hita. Algjör doði yfir mannskapnum. Slökkt á vasaljósum til að spara batteríin. Margir litlir kroppar komnir undir sömu sæng og ótti yfir því sem lægi fyrir utan glugga sem komnir voru með broskalla í móðuna á glerinu. Fullt tungl glotti við tönn. Ætlaði þetta engan endi að taka?
Skyndilega fannst höfuðrofinn á Suðurlandinu og skjannabjart ljósið brann í augun. Gríðarleg gleðibylgja hristi litla sumarhúsið og allur doði hvarf eins og dögg fyrir sólu. Kveikt var á öllum græjum og lágar raddir hækkuðu um 80 db og allt var eins og áður!
Hjerastubbur
7.10.07
Alþjóðleg kvikmyndahátíð
Tengdamóðir mín hringdi einn rigningardaginn og bauð okkur klippikort á kvikmyndahátíð. Ég þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um og sagði Já Takk. Við vorum búin að hita okkur aðeins upp þar sem við höfðum séð bæði Astrópíu og Superbad dagana áður.
Astrópía er skemmtileg mynd og eins og Bjarni segir: það er ekkert verið að búa til eitthvert dramakjaftæði, hún er bara skemmtileg og svo er hún búin og basta.
Superbad er visst sjokk fyrir unglingamóður, getur verið að líf okkar á unglingsárum hafi bara snúist um tippi og pjöllur? Myndir fjallar um kynsveltan ungling sem getur ekki hugsað sér að hefja háskólanám hreinn sveinn. Mjög uppbyggilegt efni! Ég tók alveg hálftíma í ræðuhöld eftir myndina um samskipti kynjanna. Ja hérna hér......
Mynd 1. Svo ég snúi mér að kvikmyndahátíð, þá byrjuðum við á að horfa á frábæra danska mynd, Grátið í kór. Þrátt fyrir geðsjúkan heimilisföður sem manipuleraði með alla fjölskylduna með grátköstum og sjálfsmorðshótunum og þrátt fyrir að myndin fjalli um sifjaspell og þöggun, þá er hún óskaplega vel gerð og skemmtileg líka.... merkilegt nokk. Hún er ekki "svört" ef hægt er að komast svo að orði.
Reyndar fannst mér hlegið oftar en góðu hófi gegndi að efni sem alls ekki var aðhlátursefni. Mig langaði nokkrum sinnum til að standa upp og öskra á þessa hláturmildu að þetta væri ekkert fyndið, heldur háalvarlegt mál. Stundum held ég að fólk sé svo veruleikafirrt að það haldi að allt efni sé hlátursdósaefni sem alls ekki eigi að sjúkdómsgreina neitt, bara hlægja og gleyma svo.
Þessi mynd er ljóslifandi fyrir mér og fannst mér mjög heimilislegt að sjá allt dótið frá 1971, árið sem myndin á að gerast. Svo er hún á suðurjósku og þegar hún var frumsýnd í Danmörku þurfti að texta hana fyrir danann sjálfan. Svo illskiljanlegt er þetta mál.
Mynd 2.
Næst sáum við Iraq in fragments, heimildamynd um lífið í Írak. Mjög hæg og erfið áhorfs. Mikið talað um lífið, trúmálin og öll er hún á frummáli. Sem sé, ég sofnaði í miðjum klíðum! Kunni ekki við að ganga út og lagði mig því í staðinn......
Mynd 3.
Roaming- rótleysi. Þessi mynd er um sígauna og fallvalta menningu þeirra. Þar takast á annars vegar þjóðsagan um rótleysi, þjófótt fólk (leggst ekki svo lágt að vinna fyrir matnum) og dans, og hins vegar um nútímann þar sem ungt fólk vill komast til mennta, vera nýtir þjóðfélagsþegnar og kannski pínkulítið steypt í sama farið og restin af Evrópu. Allavega, þá fylgir maður þrem sígaunum eftir á flakki um Evrópu og fáum nasaþef af því hvernig gamli tíminn og sá nýji passa ekki vel saman og þó! Mjög skemmtileg mynd um leitina að arflegð sígauna. Tónlistin í myndinni er dásamlega falleg.
Fleira? Þetta blogg sýnir að við gerðum eitthvað meira en bara að sinna daglegu amstri og vinnu. Fórum í bíó og út að borða! Kraftaverkin gerast enn.
Enn fleira? Jú Bjarni er floginn til Ungverjalands og vill örugglega sjá blogg.
Hjérastubbur
6.8.07
Selvogsgatan - Hlíðarvegur
Fjölskyldan notaði þennan fína sunnudag í verslunarmannahelgi til stórframkvæmda. Mér hefur nefnilega alltaf þótt Selvogsgatan mikið mál og helst þyrfti kunnugan með í för. Leiðsögumann fékk ég reyndar ekki, en við vorum vopnuð góðu korti af svæðinu og svo með þessa dýrmætu gps punkta ásamt afspyrnubjörtu veðri og nokkuð stífri norðanátt, þannig að ekkert gat komið í veg í góðan túr. Reiknað var með ferð upp á góða fimm tíma.
Strax á fyrstu mínútunum kom í ljós að sennilega yrðum við að endurreikna tímalengd göngunnar þar sem sá 10 ára setti í 5 gír og æddi af stað upp Grindarskörðin. Hann hélt mjög góðum meðalhraða og var upptekinn af því að ná þessu á fjórum tímum. Pældi mikið í heildarlengd leiðarinnar sem var 14.1 km og meðalhraða sem sjá mátti á gps-inu. Og við náðum þessu á fjórum tímum, og var inni í því 30 mínútna hvíld! Flott ferð og ég er svo stolt af þeim bræðrum. Á leiðinni skoðuðum við kennileiti og ræddum líf fólksins sem reisti vörðurnar og gróf niður í steininn för sem vel eru merkjanleg enn í dag. Hvernig það hafi verið að þvælast þessa leið, kannski í kulda, snjó og bleytu, í búnaði fyrri tíma sem ekki var mjög merkilegur miðað við öll flottheitin í dag. Ræddum í hvaða erindagjörðum fólkið hefur verið og hvort allir hafi komist á leiðarenda.
Seinni helmingur leiðarinnar er nokkuð einhæfur, endalausir hjallar niður í Selvoginn. Ég mæli eindregið með að gengið sé frá Grindarskörðum og suðurúr, frekar en úr Selvogi og norður. Við þurftum jú að þrælast upp skarðið en svo var leiðin stöðugt niður á við og útsýni vítt til allra átta. Flott að sjá vörðurnar sem stóðu stoltar í beinni röð eftir breiðunum. Leiðin er vel vörðuð niður á neðri hjalla við Selvog en svo sleppir þeim nánast. Ég mælist til þess að leiðin frá Selvogi verði merkt almennilega, fátt hægt að sjá þeim megin að þar sé fornfræg gönguleið.
Þessi gönguferð var sérstaklega tileinkuð látnum fjölskyldumeðlimum þ.e. pabba og mömmu, og Hadda og Sigga bræðrum mínum. Fyrir tveim árum gengum við svona minningargöngu þegar farið var yfir Klausturselsheiði með staf Jóns gamla Jónssonar í för á dánardegi hans 31. júlí. Haddi gekk með stafinn. Ég ætla að skrifa seinna um þá frábæru ferð en býð nú góða nótt.
Hjerastubbur
Skarðsmýrarfjall
Hjerastubbur
Ratleikur Hafnarfjarðar
Hjerastubbur
Landið og miðin
Í þessari hringferð um landið sem endaði fyrir austan eins og æfinlega (þrátt fyrir plön um vestfjarðaferð), voru m.a. stórfjölskyldugönguferðir á Stóra-Dímon og upp að Systravatni við Klaustur. Staðir sem yfirleitt er keyrt hratt framhjá en eru stórmerkilegir þegar betur er að gáð. Útsýnið af Stóra-Dímon er mikið yfir héruð og þar hefur verið gott að fylgjast með mannaferðum á dögum Gunnars á Hlíðarenda. Í þeirri gönguferð komst ég loks að því hversvegna guð gaf okkur tærnar. Ég ákvað að ganga berfætt upp, enda mjúkt grasið undir. Brattinn er hins vegar allmikinn og til þess að renna ekki á rassinum niður brá ég á það neyðarráð að beita fyrir mig apalátum og gróf tærnar niður í svörðinn til að hægja á ferðinni. Merkilegt nokk, þetta virkar.
Í hringferðinni voru fjölmörg eyðibýli skoðuð, vítt og breitt um landið. Seyðisfjörður toppaði eyðibýlaáhugann en þá fékk drengurinn leiðsögn aldraðs heimamanns. Emil Emilsson pabbi Dags mágs sýndi þeim uppeldisslóðir sínar út með Seyðisfirði og sagði þeim fjölmargar sögur af lífinu sem lýsti upp eyðibýli og rústir dagsins í dag. Drengurinn var með stjörnur í augunum eftir þá ferð.
Norðausturströndin var þrædd, enda orðin fjölmörg ár síðan ég hef komið þar. Við komumst meir að segja fyrir Melrakkasléttuna í bongublíðu og fórum á nyrsta stað fastalandsins, á Hraunhafnartanga. Komumst að því að hann nær ekki heimsskautsbaugnum, hnitin staðfestu það. Enduðum það kvöld í Ásbyrgi. Þar hefur ýmislegt breyst á þeim árum sem hafa liðið síðan ég var þar síðast. Þá var enn hægt að tjalda inni í botni og tjaldstæðið yst var þá frekar óspennandi. En skógurinn hefur vaxið mikið, og tjaldstæðið er yndislegt. Verð að koma fljótlega aftur og eyða viku á svæðinu í gönguferðir.
Hjerastubbur
Minning um bróður
16.5.07
Hraunin við Straumsvík

Fimmtudagskvöldið 3. maí tilkynnti unglingurinn mér það að kvöldganga á eyðibýlaslóðum virkaði mjög hvetjandi á heilasellur sem þyrftu að takast á við samræmt dönskupróf daginn eftir.
Ég steinlá fyrir þessum rökum og saman ókum við á mót lækkandi sól og lögðum við bílastæðið við Straum. Gengum um hraunin í guðdómlegu veðri og skoðuðum misgamlar minjar á svæðinu. Hann æddi út og suður með myndavélina meðan hundurinn æddi út og suður eftir eftir þefnæmu nefinu á sér. Ég kíkti á glugga
Þetta svæði er gersemi sem ég er ekki viss um að margir viti af. Við náðum bara hluta af svæðinu þessa kvöldstund og munum svo sannarlega koma aftur.
Dönskuprófið gekk vel hjá níundabekkingnum.
Hjerastubburinn
p.s. ég afritaði þessa færslu af mbl.is blogginu til að sjá hvernig þetta kemur út.
H.